KA menn deildarmeistarar í blaki

KA menn deildarmeistarar í blaki

Í gærkvöldi varð það ljóst að KA er Deildarmeistari í Mizunodeild karla í blaki annað árið í röð. Þetta varð ljóst eftir að HK sem situr í 2. sæti deildarinnar tapaði gegn Aftureldingu. KA liðið sem hefur aðeins tapað einum leik í vetur er með 32 stig í efsta sæti en HK er með 18 stig og getur ekki lengur náð KA að stigum.

Liðið hefur haft mikla yfirburði í deildinni í vetur en þetta er í sjöunda skipti sem KA er Deildarmeistari í blaki karla. Nú vantar einungis einn titil í viðbót til að jafna Stjörnuna sem er sigursælasta lið í sögunni með 8 titla.

Í tilkynningu á vef KA segir:

Við óskum strákunum hjartanlega til hamingju með titilinn og verður gaman að sjá hvort fleiri titlar bætist við í safnið síðar í vetur. Næst á dagskrá hjá liðinu og reyndar kvennaliði KA einnig er NEVZA Evrópukeppnin en liðin halda utan 8. febrúar næstkomandi og verður ákaflega gaman að sjá hvernig okkar lið spreyta sig gegn sterkum erlendum andstæðingum.

UMMÆLI

Sambíó