KA semur við Milan Joksimovic

Túfa þjálfari KA og nýji leikmaðurinn Milan. Mynd/KA.is

KA hefur fengið til liðs við sig vinstri bakvörðinn Milan Joksimovic mun hann leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Milan kemur frá Serbíu fæddur árið 1990 og er 27 ára gamall.

Hann kemur til KA frá FC Gorodeya í Hvíta-Rússlandi þar sem hann lék í efstu deild. Þar áður hefur hann leikið í efstu og næst efstu deildum í Serbíu.

Hann er mættur til landsins og byrjaður að æfa með KA og reikna má með því að hann verði orðinn löglegur til þess að leika með KA síðar í þessum mánuði, í Lengjubikarnum.

Þetta er góður fengur fyrir KA-menn en eins og áður hefur komið fram hjá KA þá mun Darko Bulotovic ekki leika með liðinu í sumar, en Darko lék sem vinstri bakvörður hjá KA síðastliðið sumar.


UMMÆLI

Sambíó