Kaffi, vatn og te á bæjarstjórnarfundum á Akureyri

Kaffi, vatn og te á bæjarstjórnarfundum á Akureyri

Kostnaður við veitingar á bæjarstjórnarfundum í Reykjavík hefur vakið mikla athygli í fréttum undanfarna daga. Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar á Akureyri, sagði að í ljósi umræðunnar væri það sjálfsagt að upplýsa um veitingar á bæjarstjórnarfundum á Akureyri.

„Það var ákveðið fyrir nokkru síðan að óþarfi að var ákveðið fyrir nokkru síðan að óþarfi væri að bjóða upp á annað en kaffi, vatn og te þar sem að fundirnir hefjist öllu jafna ekki fyrr en klukkan 16:00 og óæskilegt að troða of miklu í sig rétt fyrir matmálstíma. Þá sé heldur ekki æskilegt að fundirnir standi of lengi…..þetta er því alhaldsaðgerð í víðum skilningi,“ skrifar Halla Björk á Facebook.

UMMÆLI

Sambíó