Kammerhópurinn Bjargir í Hofi

Kammerhópurinn Bjargir í Hofi

Kammerhópurinn Bjargir mun halda tónleika í Menningarhúsinu Hofi fimmtudagskvöldið 24. júní.

Bjargir er nýr kammerhópur sem samanstendur af tveimur sellóum og fiðlu. Á tónleikunum mun hópurinn spila allskonar kammerverk frá hinum ýmsu tímum tónlistarsögunnar.

Hópinn skipa þær Helga María Guðmundsdóttir, Rún Árnadóttir og Sólrún Svava Kjartansdóttir sem eru allar uppaldar á Akureyri og útskrifuðust með framhaldspróf frá Tónlistarskólanum á Akureyri en stunda núna nám við Listaháskóla Íslands.

Miðasala er í fullum gangi á mak.is

Tónleikarnir eru hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó