Kári gefur út nýja bók

Kári gefur út nýja bók

Kári Valtýsson sendi frá sér bókina Heift þann 16. nóvember. Bókin er sjálfstætt framhald fyrsta íslenska vestrans, bókarinnar Hefndar sem kom út fyrir jólin 2018. Bókin er útgefin af Sögum útgáfu ehf.

Kári sem er 34 ára, giftur þriggja barna faðir. Hann starfar sem lögmaður en segist nýta kvöldin sín, eða morgna, í það að skrifa bækur. Hann er uppalinn á Akureyri en er um þessar mundir búsettur í Vesturbænum.

Bókin Heift gerist árin 1873-1882 á gresjum Ameríku og Kanada. Aðalsöguhetjan er Íslendingurinn knái, Gunnar Kjartansson sem í upphafi bókar berst við bágindi ásamt konu sinni og syni við Winnipeg-vatn í Kanada. Hann leitar svo á ný til Bandaríkjanna þegar fregnir berast af gullfundi við Svörtu-Hlíðar á Wyoming-svæðinu og freistar þess að bæta kjör sín og sinna.

En draugar fortíðar elta Gunnar uppi á sléttum Bandaríkjanna og upphefst æsispennandi framvinda þar sem hefndarþorsti indíánans Gráa-Úlfs, rekur Gunnar í hermennsku undir forystu George A. Custer sem hefur verið falið að kveða niður indíánaóeirðir sem geisað hafa á sléttunum. Um sömu mundir veldur hinn illræmdi útlagi Jesse James og gengi hans miklum ótta fyrir heiftarleg voðaverk og rányrkju. Hundelt af laganna vörðum fetar útlagagengið sig lengra inn á slétturnar þar sem blóðmettuð slóð þeirra rennur saman við slóð Gunnars. Uppgjör stríðandi fylkinga er óumflýjanlegt.

UMMÆLI