Karl Frímannsson ráðinn sviðsstjóri fræðslusviðs Akureyrarbæjar

Karl Frímannson er nýr sviðsstjóri fræðslusviðs hjá Akureyrarbæ. Karl sem er fæddur árið 1959 starfaði síðast sem aðstoðarmaður mennta – og menningarmálaráðherra.

Karl er með meistarapróf í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri þar sem lokaverkefni hans fjallaði um ábyrgð skólastjóra grunnskóla.

Hann hefur áður verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi, sveitarstjóri í Eyjafjarðasveit og skólastjóri Hrafnagilsskóla. Karl starfaði á sínum tíma sem þróunarstjóri og fræðslustjóri hjá Akureyrarbæ.

Samkvæmt heimasíðu Akureyrarbæjar mun Karl taka til starfa fljótlega.

 

UMMÆLI

Sambíó