Katla Björg leggur skíðin á hilluna

Katla Björg leggur skíðin á hilluna

Akureyringurinn Katla Björg Dagbjartsdóttir hefur ákveðið að leggja skíðin á hilluna eftir þrálát meiðsli. Katla er þrefaldur Íslandsmeistari og fremsta svigkona Íslands á skíðum.

Landsliðskonan Katla Björg hefur verið að glíma við höfuðmeiðsli síðastliðna 17 mánuði eftir að hún rotaðist á æfingu daginn fyrir Skíðamót Íslands 2022. Þrálátir verkir og vanlíðan hafa gert það að verkum að hún tekur þá ákvörðun að hætta og setja heilsuna í fyrsta sæti. 

Á ferlinum tók Katla Björg þátt á tveimur Heimsmeistaramótum fullorðinna, þar náði hún besta árangri íslenskra kvenna í stórsvigi í Cortina árið 2021 og hafnaði í 34. sæti. Einnig hefur hún tekið þátt á tveimur Heimsmeistaramótum unglinga. Katla Björg sigraði tvö alþjóðleg svigmót fullorðinna á erlendri grundu og hafnaði sex sinnum á verðlaunapalli á slíkum mótum. Auk þess sigraði Katla Björg fjölmörg bikarmót á Íslandi á ferlinum ásamt því að vera margfaldur unglingameistari sem og bikarmeistari. Síðastliðið vor landaði hún svo þremur Íslandsmeistaratitlum í fullorðins flokki, svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni. 

„Það er mikilvægt fyrir yngri iðkendur skíðafélagsins að eiga góðar fyrirmyndir eins og Katla hefur ávallt verið. Skíðafélagið óskar Kötlu velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur. Katla Björg vill koma á framfæri þökkum til styrktaraðila, þjálfara, liðsfélaga, keppinauta og annarra sem stutt hafa við bakið á henni í gegnum árin,“ skrifar Fannar Gíslason, formaður Skíðafélags Akureyrar á vef félagsins.


UMMÆLI