Prenthaus

Katrín og Bjarkey í Listasafninu á Akureyri

Katrín og Bjarkey í Listasafninu á Akureyri

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG og Bjarkey Gunnarsdóttir, oddviti VG í Norðausturkjördæmi ræða stóru málin á tveimur opnum fundum í Listasafninu á Akureyri á sunnudaginn 29 ágúst. Fyrri fundurinn er um menningu og hefst klukkan 15:30. Þar fara þær yfir áherslur Vinstri-hreyfingarinnar græns framboðs í menningarmálum og hlusta á sjónarmið fundargesta.

Seinni fundurinn er um málefni ungs fólks og hefst hann klukkan 17.00. Katrín og Bjarkey fara þar yfir áherslur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í húsnæðismálum, menntamálum og öðru því sem snertir beint hagsmuni ungs fólks og hlusta eftir sjónarmiðum fundargesta

Allra sóttvarna verður gætt í hvívetna, grímuskylda er á fundinum og gætt verður fjarlægðartakmarkana.


Kaffið.is fylgist með Alþingiskosningunum í haust með áherslu á Norðausturkjördæmi. Hér má finna fleira greinar og annað gagnlegt efni tengt kosningunum.

UMMÆLI

Sambíó