Keyptur verði nýr og öflugur bíll til að sópa og þvo götur

Keyptur verði nýr og öflugur bíll til að sópa og þvo götur

Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrar hefur lagt til að keyptur verði nýr bíll til að sópa og þvo götur bæjarins til þess að reyna að koma í veg fyrir svifryksmengun.

Á fundi ráðsins í síðustu viku var farið yfir reynslu síðustu vikna, rædd staða aðgerðaáætlunar og lausnir á svifryksvandanum. Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.

Sjá einnig: „Líklega hvergi fleiri bílar á íbúa í allri Evrópu en á Akureyri“

Í bókun segir að það sé forgangsmál hjá Akureyrarbæ að fækka þeim dögum á ári hverju sem svifryk fer yfir heilsuverndarmörk, enda sé talið að það sé fjöldi ótímabærra dauðsfalla á ári hverju á Íslandi sem má tengja við svifryk.

„Undanfarnar vikur hefur verið notaður sjór og saltvatn á götur til að binda ryk og hefur það virkað mjög vel til að hemja rykið, en hins vegar haft þá óheppilegu hliðarverkun að þegar hitastig fer yfir frostmark þá myndast leðja á götunum. Undirliggjandi ástæða þess er að göturnar eru skítugar,“ segir í bókuninni.

Ný stefna um aðgerðir gegn hálku og svifryki mun því meðal annars fela í sér aukinn snjómokstur og að göturnar verði þrifnar oftar og betur en tíðkast hefur.

„Því er lagt til að Akureyrarbær kaupi nýjan og öflugan bíl til að sópa og þvo götur. Leitast verður við að finna heildarlausn sem felur í sér mikinn árangur í baráttu við svifryk og tryggir jafnframt viðunandi hálkuvarnir og sem mesta sátt á meðal bæjarbúa,“ segir í bókuninni.

Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að framkvæma verðkönnun á götusópum og ljúka við aðgerðaáætlun varðandi svifryk og hálkuvarnir.

UMMÆLI