Kia lækkar verð á rafbílum

Kia lækkar verð á rafbílum

Bílaframleiðandinn Kia og Bílaumboðið Askja komust nýverið að samkomulagi um að lækka verð á vinsælum tegundum rafbíla. Askja hefur unnið að því með framleiðanda að útvega betri verð í takt við sterka markaðsstöðu á Íslandi og hefur því nýr verðlisti tekið gildi.

Umboðsaðili Kia á norðurlandi er Höldur bílasala á Akureyri.

Lækkandi framleiðslukostnaður og sterk hlutdeild Kia á Íslandi eru grundvallarforsendur þess að verð á Kia Niro og Kia EV6 er nú betra en fyrir áramót þegar breytingar áttu sér stað á markaði.

Frá árinu 2010 hafa yfir 18.000 nýir Kia bílar verið skráðir á göturnar, en þess má geta að Kia er annað mest skráða merkið á Íslandi síðasta áratuginn. Árið 2023 var Kia þriðja mest selda merkið á Íslandi og eitt af þremur á markaði með yfir 11% markaðshlutdeild.

„Við erum ótrúlega ánægð með jákvæð viðbrögð frá framleiðanda, nú þegar hafa verðlistar og verð í vefsýningarsal verið uppfærð, þau tóku gildi fyrir helgi og við sjáum strax góð viðbrögð. Sem dæmi um verð má nefna vinsæla tegund Kia Niro sem fæst nú á 5.990.777 kr með orkustyrk, en var áður 6.890.777 kr,“ segir Kristmann Freyr Dagsson sölustjóri Kia.

Kia setti á síðasta ári met í fjölda J.D. Power verðlauna sem eitt vörumerki vinnur á eina og sama árinu. Kia EV6 var valinn bíll ársins 2022 á Íslandi og í Evrópu og fyrsti alrafmagnaði jeppinn EV9, er í úrslitum á World Car Awards sem kynnt verða 27. mars nk.

Kia hyggst framleiða 15 gerðir rafbíla fyrir árið 2027, en næstur á markað er EV3 sem kemur til Íslands næsta vetur.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó