Kjass gefur út nýtt lag

Kjass gefur út nýtt lag

Á morgun kemur út lagið Hey You eftir Kjass. Kjass er listamannsnafn tónlistarkonunnar Fanney Kristjáns Snjólaugardóttur.

Hey You er fyrsta lagið sem birtist á streymisveitum af annarri plötu Kjass sem ber titilinn Bleed´n Blend og er væntanleg í haust.

„Lagið Hey You er eins og rómantískur dagdraumur um þrána til að tengjast annarri manneskju á djúpan hátt og sjá allar hliðar hennar, dökkar og ljósar. Vid lifum mörg í þeim ótta að vera hafnað ef einhver fær að sjá inn fyrir skelina okkar en það er kannski einmitt þar nándin verður til,“ segir Fanney.

Kjass gaf út plötuna Rætur árið 2018 sem hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í opnum flokki. 

Fanney segir að á plötunni sem er væntanleg í haust muni kveða við nýjan litríkan tón í tónlistinni sem tekur snarpa beygju ú átt að poppi og rokki.

Lagið Hey You, ásamt myndbandi, kemur út á morgun á streymisveitum. 


UMMÆLI