Prenthaus

Kjörstaðir á Akureyri

Mynd: María H. Tryggvadóttir

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt tillögur kjörstjórnar Akureyrar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 26. maí nk.

Akureyrarkaupstað verður skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Á Akureyri verður kosið í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verður kjörstaður í Hríseyjarskóla og í Grímsey er kosið í Grímseyjarskóla. Kjörfundir standa frá klukkan 09:00 til 22:00 á öllum stöðum.

Sjá einnig: Sjö flokkar bjóða fram á Akureyri

UMMÆLI