Origo Akureyri

Kristín Aðalheiður hjá KA/Þór í 2 ár til viðbótarMynd: ka.is

Kristín Aðalheiður hjá KA/Þór í 2 ár til viðbótar

Handboltakonan Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt KA/Þór. Kristín, sem er 24 ára, leikur í vinstra horni og hefur þegar spilað í 115 leikjum í meistaraflokki fyrir KA/Þór. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu KA.

„Það eru frábærar fréttir að við séum búin að framlengja við Kristínu og verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hennar á vellinum fyrir KA/Þór. Hún er algjör lykilleikmaður fyrir komandi ár, hefur þrátt fyrir ungan aldur mikla reynslu og er auk þess góð fyrirmynd fyrir hina fjölmörgu ungu leikmenn í liðinu,“ segir Stefán Guðnason formaður KA/Þórs á heimasíðu KA.

UMMÆLI