Kristján Atli til liðs við Þór

Kristján Atli til liðs við Þór

Knattspyrnumaðurinn Kristján Atli Marteinsson er genginn til liðs við knattspyrnuliðs Þórs og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar. Þetta kemur fram á vef félagsins í dag.

Kristján Atli er 26 ára gamall miðjumaður sem lék með Kórdrengjum síðasta sumar en eftir að hafa farið í gegnum yngri flokka HK hefur Kristján Atli leikið með Fjarðabyggð, Selfoss, Magna og Aftureldingu í meistaraflokki og leikið alls 165 leiki í öllum keppnum, flesta í B-deild eða 72 leiki. Hann hefur skorað 10 mörk á meistaraflokksferli sínum.

Næsti leikur Þórs er þegar Lengjubikarinn hefst með heimaleik gegn Keflavík þann 12.febrúar næstkomandi.


UMMÆLI