Kvikmynd Valdimars frumsýnd á CannesValdimar ásamt aðalleikurum myndarinnar

Kvikmynd Valdimars frumsýnd á Cannes

Kvikmyndin Dýrið, á ensku: Lamb, eftir leikstjórann Valdimar Jóhannsson var frumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni í Frakklandi í dag. Þetta er fyrsta mynd Valdimars í fullri lengd en hún var tekin upp í Hörgársveit.

Sænska leikkonan Noomi Rapace fer með aðalhlutverk í myndinni ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni. Þau leika sauðfjárbændurna Maríu og Ingvar sem búa á bóndabæ í afskekktum dal. Einn daginn fæðist dularfull vera á bænum og þau ákveða að ala hana upp sem sitt eigið afkvæmi.

Valdimar skrifaði handrit myndarinnar ásamt Sjón en framleiðendur eru Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim. Með helstu hlutverk ásamtRapace og Hilmi Snæ Hilmir fara Björn Hlynur Haraldsson og Ingvar E. Sigurðsson.

Valdimar, sem er fæddur og uppalinn á Svalbarðseyri, hefur starfað í íslenskum kvikmyndaiðnaði í um 20 ár. Hann hefur gert stuttmyndirnar Dögun og Harmsögu ásamt því að hafa starfað sem ljósamaður, gripill og tökumaður í fjölmörgum verkefnum.

Hann nam við Kvikmyndaskóla Íslands eftir útskrift úr Verkmenntaskólanum á Akureyri. Síðar fór hann til Sarajevo í Bosníu þar sem ungverski leikstjórinn, Béla Tarr, rak kvikmyndaskólann Film Factory við Sarajevo School of Science and Technology 2012-2016.

Sjáðu stikluna fyrir Dýrið:

https://youtu.be/GOQ8QWk1icc
Sambíó

UMMÆLI