Lágmarkslaun orðin 300.000 kr.

Í gær, þann 1. maí,  hækkuðu laun almennt um 3% samkvæmt kjarasamningi SGS og SA. Lágmarkslaun hækkuðu enn meira eða sem nemur 7% og er lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf því orðin 300 þúsund krónur. Þetta kemur fram á vef Einingar Iðju.

Um er að ræða mikilvægan og langþráðan áfanga en eins og svo margir muna þá fór Starfsgreinasambandið fram með þá skýru kröfu í kjarasamningaviðræðunum 2015 að lágmarkslaun yrðu 300 þúsund krónur innan þriggja ára. Sú krafa er því orðin að veruleika í dag, þökk sé órofa samstöðu og krafti félagsmanna.

Nýútgefna kauptaxta félagsins fyrir almenna markaðinn má nálgast hér.


UMMÆLI

Sambíó