Prenthaus

Lagning göngu, hjóla og unaðsstígs í Vaðlareit

Lagning göngu, hjóla og unaðsstígs í Vaðlareit

Búið er að undirrita samninga um lagningu göngu, hjóla og unaðsstígs í Vaðlareit. Stígurinn mun liggja eftir endilöngum Vaðlareit samtals um 2,2 km. Þetta kemur fram á Facebook síðu Skógræktarfélags Eyfirðinga í dag.

„Í þessum áfanga verður farið frá jarðgöngum í norðri að væntanlegum Skógarböðum í suðri. Í framhaldi er fyrirhuguð tenging til Akureyrar sem og frekari stíglagning norður Svalbarðsstrandarhrepp,“ segir í tilkynningunni.

Verkið verður unnið í samvinnu Svalbarðsstrandarhrepps, Vegagerðarinnar, Norðurorku og Skógræktarfélags Eyfirðinga sem mun sjá um fellingu og fjarlægingu trjáa sem þurfa að víkja fyrir stíglögn. Stígurinn verður 3.5 metra breiður og malbikaður, undir honum verða lagðar vatnslagnir sem flytja munu heitt og kalt vatn frá Vaðlaheiðargöngum til Akureyrar auk þess að tryggja Skógarböðunum sem nú rísa í suðurhelmingi skógarins, vatn til sinnar starfsemi.

Svalbarðsstrandarhreppur og Norðurorka hf. hafa óskað eftir tilboðum í verkið en nánar má kynna sér það á vef Svalbarðsstrandarhrepps með því að smella hér.

„Jafnframt því að þjóna umferð gangandi og hjólandi vegfarenda mun stígurinn stórbæta aðgengi að perlum skógarins sem eru ófáar og auðvelda mjög alla umhirðu hans. Síðast en ekki síst gerir hann fleiri samfélagshópum kleift að njóta náttúrunnar og bæta heilsu sína td fyrir okkur sem eru fótafúin, glímum við fötlun, elli, skert þrek osfrv. Þá er fyrirhugað að útbúa þrjá áningarstaði við stíginn þar sem lúnir geta hvílt sig, hægt er að njóta útsýnis, samskipta við samferðafólk, upplifa náttúruna listviðburði og fræðast um hina merkilegu sögu skógarins,“ segir í tilkynningu Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Svalbarðsstrandarhreppur og Skógræktarfélagið hafa einnig sammælst um að þróa með sér samstarf um þjónustu við stíginn.

„Erum við full tilhlökkunar að vinna með því dugmikla fólki að mikilvægu lýðheilsuverkefni sem í senn verður sannkölluð sveitarprýði. Árið 1936, fyrir 85 árum síðan hóf Skógræktarfélag Eyfirðinga skógrækt í Vaðlareit og hefur plantað þar alls um 240.000 trjám. Auk algengari trjátegunda sem við þekkjum úr skógrækt má þar einnig finna fágætar tegundir líkt og hlyn, álm, síberúþin, hvítþin, alaskasýprus, eik, hrossakastaníu hæruöl osfrv og skógarfururnar sem lifðu af lúsafaraldur á 6. áratugnum eru nú margar hverjar mikilfenglegir risar og afar verðmæt minnismerki í íslenskri skógræktarsögu.“

„Fyrir okkur sem fögnum í dag er líka vert að þakka sporgöngufólkinu, félagsmönnum sem fyrir 85 árum hrintu af stað skógræktarverkefni á tímum þar sem nánast enginn ræktaður skógur var til í landinu, landeigendum sem lögðu okkur til land af ótrúlegri framsýni og allra þeirra þúsunda sjálfboðaliða sem lagt hafa hönd á plóg með draum um betra Ísland að leiðarljósi. Á þessum verðmæta grunni byggjum við í dag og Eyfirskt samfélag á eftir að njóta um ókomna tíð. Áfram Vaðlareitur,“ segir í tilkynningunni.

UMMÆLI

Sambíó