Prenthaus

Langflestir sem kusu vilja gildandi aðalskipulag áfram á Oddeyrinni

Langflestir sem kusu vilja gildandi aðalskipulag áfram á Oddeyrinni

Niðurstaða liggur fyrir í ráðgefandi íbúakosningu um aðalskipulag Oddeyrar sem lauk á miðnætti. Flestir greiddu atkvæði með gildandii aðalskipulagi atkvæði, eða 67% þeirra sem tóku þátt. Þar á eftir kom auglýst tillaga þar sem hús geta verið 6-8 hæðir og því næst málamiðlunartillaga með 5-6 hæða húsum að hámarki. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Alls tóku 3.878 íbúar sveitarfélagsins þátt eða um 26% þeirra sem uppfylltu skilyrði til þátttöku.

Úrslitin eru eftirfarandi:

„Kosningin var opin í þjónustugáttinni 27.-31. maí. Allir íbúar, 18 ára og eldri, með lögheimili í sveitarfélaginu gátu tekið þátt. Niðurstaðan er bæjarstjórn ráðgefandi, enda var markmiðið fyrst og fremst að kanna vilja íbúa gagnvart uppbyggingu á svæðinu. Þeim fjölmörgu íbúum sem tóku þátt er þakkað kærlega fyrir þeirra framlag,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Sambíó

UMMÆLI