Origo Akureyri

„Langþráð breyting og mikilvæg tímamót“

„Langþráð breyting og mikilvæg tímamót“

Heilsugæslustöðin á Akureyri opnar í nýju og glæsilegu húsnæði, mánudaginn 19. febrúar nk. við Sunnuhlíð 12 á Akureyri. Á stöðinni verður öll almenn læknaþjónusta, hjúkrunarmóttaka, meðgönguvernd, ung- og smábarnavernd og önnur þjónusta fyrir íbúa á Akureyri og nærsveitarfélög.  Húsnæðið er sérhannað sem heilsugæslustöð, en umfangsmiklar endurbætur og uppbyggingar hafa staðið yfir í tæp 2 ár. 

„Þetta er langþráð breyting og mikilvæg tímamót“, segir Jón Torfi Halldórsson, yfirlæknir á heilsugæslunni á Akureyri. „Í rúm 40 ár hefur heilsugæslustöðin verið í ófullnægjandi húsnæði með erfiðri aðkomu en opnar núna í sérhönnuðu húsnæði með þægilegri og til muna betri aðkomu fyrir okkar skjólstæðinga.  Starfsemin verður öll á einni hæð sem gefur mikil tækifæri fyrir starfsfólk til að bæta þjónustuna með aukinni þverfaglegri samvinnu.“

„Það er okkur öllum mikið ánægjuefni og tilhlökkun að flytja í nýtt fallegt húsnæði“, segir Inga Lára Símonardóttir, yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni á Akureyri.„Spennandi tímar eru framundan og þetta gefur okkur mikil tækifæri til að þróa þjónustuna enn frekar til hagsbóta fyrir okkar skjólstæðinga.. „Við á heilsugæslunni óskum starfsmönnum og skjólstæðingum okkar til hamingju með þennan langþráða áfanga.“ 

Vegna flutninga yfir á nýja heilsugæslustöð verður þjónusta heilsugæslunnar í Hafnarstræti takmörkuð dagana 14.-16. febrúar, nema bráðaþjónusta sem áfram verður sinnt að fullu í Hafnarstræti til og með 18. febrúar. Beðist er velvirðingar á óþægindum vegna þessa.  

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó