Leikfélag Akureyrar fagnar 100 árum í dag

Í dag, miðvikudaginn 19. apríl, fagnar Leikfélag Akureyrar 100 ára afmæli sínu. Af þessu tilefni verður blásið til afmælisveislu í Samkomuhúsinu þar sem Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heldur erindi, Hundur í óskilum fara með gamanmál og fluttar verða tónlistarperlur úr 100 ára sögu Leikfélagsins ásamt fleiru.

Auk þessarar afmælishátíðar eru fjölmargir viðburðir fyrirhugaðir á afmælisárinu, í haust kemur út afmælisrit þar sem saga félagsins frá 1992 til dagsins í dag er rakin og þá ætlar MAK í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að standa fyrir veglegri afmælistónlistarveislu á haustmánuðum.

Jón Páll Eyjólfsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, skrifaði pistil í tilefni dagsins og sem birtist á vef Menningarfélags Akureyrar. Pistilinn má lesa hér.

Mynd: Mak.is

UMMÆLI