Leikfélag Akureyrar hlaut fjórar tilnefningar til Grímunnar

Leikfélag Akureyrar hlaut fjórar tilnefningar til Grímunnar

Leikfélag Akureyrar er tilnefnt til fjögurra Grímuverðlauna í ár en tilnefningar voru kynntar í gær.

Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist eftir Umskiptinga hlýtur tilnefningu sem barnasýning ársins. Þá er Hjalti Rúnar Jónsson er tilnefndur sem leikari ársins í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í verkinu.

Lee Proud og Rúnar Kristinn Rúnarsson eru tilnefndir fyrir Vorið vaknar. Lee Proud fær tilnefningu í flokknum dans- og sviðshreyfingar en Rúnar Kristinn Rúnarsson er tilnefndur sem söngvari ársins í söngleiknum.

Hér má sjá allar tilnefningarnar

UMMÆLI