Leikfélag Hörgdæla sýnir leikritið Stelpuhelgi

Leikfélag Hörgdæla sýnir leikritið Stelpuhelgi

Leikfélag Hörgdæla er um þessar mundir að hefja æfingar á leikritinu Stelpuhelgi eftir Karen Schaeffer í þýðingu Harðar Sigurðarsonar.

Leikritið Stelpuhelgi er stórskemmtilegur farsi þar sem vinkonurnar Meg, Carol, Dot ásamt Ellie dóttir Megs hittast í bústaðnum hjá Dot. Markmið helgarinnar er að hafa gaman, skiptast á sögum, drekka áfengi og fara yfir næstu bók í bókaklúbbnum, lausar við alla karlmenn.

Það fer svo að flækjast þegar gengur á áfengið og vinkonurnar eru allar búnar að bjóða hver sínum karli í eftirpartý þvert á hugmyndir gestgjafans.

Leikstjóri sýningarinnar verður Gunnar Björn Guðmundsson en hann er margreyndur leikstjóri með yfir 30 leiksýningar, 4 áramótaskaup og kvikmyndir eins og Astrópía og Amma Hófí á bakinu. Stefnt er á frumsýningu 2. mars og miðasala fer af stað á næstu dögum.

Sýningin er tilvalin fyrir hópa, eins og starfsmannafélög. Mun leikfélagið bjóða uppá hópafslætti sem verða auglýstir síðar. Leikfélag Hörgdæla og fyrirrennar þess setja reglulega upp leiksýningar á Melum sem dæmi má nefna Í fylgd með fullorðnum sem leikfélagið setti upp síðastliðin vetur og sló heldur betur í gegn, ásamt öðrum sýningum sem hafa getið gott orð af sér þannig að það verður enginn svikinn af heimsókn á Mela.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó