Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir Tröll

Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir Tröll

Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri er stórhuga fyrir uppsetningu vetrarins. Í ár verður sett upp leikritið Tröll sem er ný leikgerð eftir Jokku G. Birnudóttur og Kolbrúnu Lilju Guðnadóttur, með teiknimyndina Trolls að fyrirmynd.

Sagan er full af góðum boðskap en hún fjallar meðal annars um gleðina, sem býr innra með okkur. Um er að ræða skemmtun fyrir alla fjölskylduna með fjölbreyttri tónlist frá sjöunda, áttunda og níunda áratugnum.

Leikstjóri sýningarinnar er Kolbrún Lilja Guðnadóttir.

Sýningar verða:

Sunnudagur 16.febrúar kl.14:00 og kl.17:00
Sunnudagur 23.febrúar kl.14:00 og kl.17:00

Miðasala fer fram á mak.is

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó