Leita að nýjum rekstaraðilum fyrir kaffihúsið í Listasafninu

Leita að nýjum rekstaraðilum fyrir kaffihúsið í Listasafninu

Auglýst hefur verið eftir nýjum aðila/aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi í Listasafninu á Akureyri á vef bæjarins.

Það er einungis rúmt ár frá því að hjónin Marta Rúnar-Þórðardóttir og Ágúst Már Sigurðsson skrifuðu undir samning um rekstur á kaffihúsinu en nú er leitað að nýjum aðilum til að taka að sér reksturinn næstu þrjú ár.

Á vef Akureyrarbæjar segir: „Góð aðstaða er fyrir spennandi kaffihús á jarðhæð Listasafnsins. Kaffihúsið er sjálfstæð eining á góðum stað í Listagilinu en jafnframt mikilvægur hluti af Listasafninu.

Áhugasamir eru beðnir að óska eftir útboðsgögnum í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is.

Tilboð skulu hafa borist til Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akureyri eigi síðar en kl. 11 miðvikudaginn 29. maí 2019.

Listasafnið á Akureyri er í eigu Akureyrarbæjar og starfar í þágu almennings. Í ágúst 2018 tók safnið í notkun nýja sýningarsali og kaffihús eftir miklar endurbætur á húsnæði þess.

Listasafnið óskar eftir áhugasömum rekstraraðilum til að taka að sér veitingarekstur í kaffihúsi á jarðhæð safnsins, til þriggja ára, með möguleika á endurnýjun til annarra þriggja ára. Kaffihúsið verður sjálfstæð eining á góðum stað í Listagilinu en jafnframt mikilvægur hluti af Listasafninu. Kaffihúsinu er ætlað að sinna fjölbreyttum hópi almennra gesta og einnig gestum Listasafnsins. Rekstraraðila er ætlað að byggja upp nútímalegt kaffihús með metnaðarfulla veitingastefnu sem rímar við starfsemi safnsins og höfðar jafnframt til breiðs hóps gesta, viðskiptavina, ferðamanna og íbúa bæjarins.

Kaffihúsið er við innganginn með stórum glugga sem vísar til suðurs út í Listagilið. Þar er pláss fyrir 30-40 manns og auk þess verður hægt að sitja úti á verönd á skjólgóðum stað á sumrin.“

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó