Lemon opnar á Akureyri í vor

Lemon opnar á Akureyri í vor

Veitingastaðurinn Lemon mun opna á Akureyri í vor. Það eru þau Jóhann Stefánsson og Katrín Ósk Ómarsdóttir sem standa á bakvið opnun staðarins.

Þau staðfestu þetta í samtali við Kaffið.is nú rétt í þessu.

Staðurinn mun opna við Glerárgötu og er stefnt að opnun í maí.

Fyrsti Lemon staðurinn á Íslandi opnaði í mars árið 2013 á Suðurlandsbraut 4 en síðan þá hafa fjórir bæst í hópinn. Á Laugarvegi, í Hafnarfirði, í Reykjanesbæ og í París.

Lemon er skyndibitastaður sem sérhæfir sig í samlokum og ferskum djúsum.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó