Prenthaus

Lestrarhilla vígð í Oddeyrarskóla – Myndir

leshilla7

Þessar stelpur gátu ekki leynt kæti sinni yfir nýju hillunni

Í morgun var svokölluð lestrarhilla vígð í Oddeyrarskóla í tilefni af degi íslenskrar tungu. Hillan er í fimm hlutum og myndar orðið „LESTU“. Í henni má finna bækur við hæfi grunnskólakrakka og þeir hvattir til að taka sér bók í hönd og lesa.

Hugmyndin kom upphaflega frá Svönu Dan fyrrverandi aðstoðarskólastjóra í Oddeyrarskóla sem hafði rekist á myndir af samskonar lestrarhillu sem myndaði orðið „READ“ á veraldarvefnum og datt í hug að gaman væri að færa þetta yfir á íslensku. Fólkið í skólanum tók hugmyndinni opnum örmum og nú er hún sem sagt orðin að veruleika í anddyri skólans þar sem hún blasir við öllum sem inn koma.

Ýmsir aðilar gáfu vinnu sína eða styrktu framtakið með öðrum hætti og má nefna að foreldri við skólann safnaði 200.000 kr. til bókakaupa frá foreldrum barna við skólann og útskriftarnemar söfnuðu fé svo hægt væri að smíða hilluna.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við hátíðarhöld og vígslu hillunnar á degi íslenskrar tungu í morgun. Þar voru flutt ávörp og nemendur buðu upp á alls kyns skemmtiatriði með leik og söng.

leshilla5

leshilla4

leshilla3

leshilla1

leshilla6

Sambíó

UMMÆLI