Líf og fjör á Parkourmóti FIMAK

Akureyrarmeistarar í Parkour 2017

Parkour er jaðaríþrótt, nátengd fimleikum, sem hefur náð miklum vinsældum á Íslandi undanfarið. Flest fimleikafélög landsins eru með Parkour deild innan sinna vébanda. Í Parkour er markmiðið að komast frá A til B eins hratt og mögulegt er, sama hvaða hindranir verða í veginum.

Í gær fram Parkourmót Fimleikafélags Akureyrar í tengslum við AK Extreme. Keppt var í fimm aldursflokkum, auk þess sem Akureyrarmeistarar FIMAK í drengja og stúlknaflokki voru krýndir. Aukagrein á mótinu var síðan wall-flip session, þar sem veitt voru verðlaun fyrir besta og frumlegasta stökkið í bæði stúlkna og drengjaflokki.

Úrslit mótsins voru eftirfarandi.

Akureyrarmeistari í Parkour stúlkna: Sara María Birgisdóttir

Akureyrarmeistari Í Parkour drengja: Ísak Andri Bjarnason

Wall-flipp session

Sara María frá FIMAK og Sigurður Ívar úr ÍA báru sigur úr býtum

Hraðabraut

Stúlkur

2005 til 2007

1. Hrafnhildur Kristjánsdóttir FIMAK

2002 til 2004

1. Kolbrún Perla Þórhallsdóttir- FIMAK

2. Sunna Dís Helgadóttir – Ármann

3. Marta Jóhannsdóttir – FIMAK

1998 til 2001

1. Sara María Birgisdóttir – FIMAK

2. Katrín Karítas Viðarsdóttir- FIMAK

Drengir

9 ára og yngri

1. Steinar Svanlaugsson – FIMAK

2. Funi Hrannarsson – FIMAK

3. Hreiðar Örn Jóhannesson – FIMAK

2005 til 2007

1. Gísli Már Þórðarson – FIMAK

2. Mikael Örn Reynisson – FIMAK

3. Birkir Atli – ÍA

2002 til 2004

1. Viggó Ýmir Hafliðason – Ármann

2. Ólafur Tryggvason – FIMAK

3. Emill Örn Jóhannesson – Ármann

1998 til 2001

1. Viktor Hugi Júlíusson – Dalvík

2. Brynjar Örn Birgisson – Björk

3. Viktor Smári Eiríksson – Dalvík

1997 og eldri

1. Mateusz Jonczyk – Bjarkirnar

2. Sigurður Ívar – Akranes

3. Magni Grétarsson – Fylki

Sambíó

UMMÆLI