LÍN og Tony Montana

LÍN og Tony Montana

Ásgeir Ólafsson Lie skrifar:

Mér þykir gaman að horfa á gangsteramyndir. Alvöru gangsteramyndir. Ég er búinn að sjá allar þessar helstu sem gefnar voru út fyrir 1995. Þar sem Robert de Niro fer á kostum og Al Pacino sem siðlausi Tony Montana svo eitthvað sé nefnt. Allar þessar myndir snúast um það sama. Völd, peninga, okurvexti, græðgi og morð.

Svo sá ég einnig „ sannsögulega “ heimildar þætti um Clark Olofsson, sænska svikarann sem leikinn er af  Bill Skarsgård. En þeir þættir fjalla um uppruna Stockholm heilkennisins.

Þegar ég setti þetta saman þá áttaði ég mig á að þessir gangsterar sem ég hef horft á og gefið tíma minn eru ekkert annað en stórhættulegir fjöldamorðingjar og ættu svo sem ekki að fá athygli frá manni eins og mér sem telur sig vera með þannig hluti á hreinu, að vera góður við náungann og sanngjarn.  En ég horfi samt á þessar myndir og sækist eftir svipuðum þáttum.

Í einni myndinni sem ég sá þá rukkar mafían mánaðarlegar greiðslur fjölskyldu fyrir að „fá að“ vera með viðskipti á Manhattan eyju. Ef þú borgar ekki þá er tekinn af þér fótur, annar útlimur eða fjölskyldumeðlimur.   Sumir þeirra settu hestshaus í garðinn hjá þér til að láta vita að við þeir myndu koma og innheimta og svo kála þeir þér. Þá varstu búinn!

Það var ekki ákjósanleg staða að fá hestshaus í garðinn sinn. Alls ekki.

Svo hugsaði ég lengra.

Ef ég tek námslán og greiði af því eins og lagt er upp með þá ætti ég að geta greitt það niður í venjulegum heimi ekki satt?   En i heimi mafíósa og gangstera ertu skuldsettur ævilangt.  Þú greiðir þar til þú ferð yfir móðuna miklu.

En hvað með alla þá sem eru að greiða af námsláninu sínu og lánið hækkar með hverri innborgun? Þeir ná ekki að borga það niður? Tveggja milljóna króna lán verður 2.7 milljónir eftir 360.000 króna innborgun?  Ómöguleigir okurvextir.

,,Hæ! verðandi nemandi! Taktu námslánið þitt hjá okkur og komdu þér í spennandi skuldafangelsi það sem eftir er ævinnar. Hjá okkur greiðir þú aldrei niður lánið.  Komdu til okkar. Broandi.  Lánastofnun Íslenskra Námsmanna.

Svona ætti auglýsingin að hljóma í raun.

Er Ríkið að gera eitthvað annað en De Niro og Tony Montana gerðu á sínum tima? Er Ríkið að gera eitthvað annað en Clark Olofsson svikahrappurinn frá Sviþjóð sem fékk heilkennið nefnt eftir höfuðstað sínum?

Er Ríkið með þessum ónýtu námslánum sínum á „þú getur aldrei greitt það niður“ vöxtum að fangelsa ungt fólk viljandi? Saklaust?

Hver er í alvöru munurinn á Ríki þegar þú borgar þeim ekki ofurvextina þeirra sem aldrei er hægt að greiða niður og gangsteranum Tony Montana?

Munurinn er þessi.

Það var hægt að semja við Tony og losna undan útlimalestingum með því að borga.

Hinir gangsterarnir, þessir Íslensku, henda þér fangelsi ef þú borgar ekki ofurvextina þeirra.

Eru þessi ónýtu lán í alvöru úrræði Ríkis til námsmanna á Íslandi?

Titillinn að nýju þáttaröðinni á Netflix skrifar sig sjálfur.

„Íslenska Ríkið – Völd, peningar, okurvextir, græðgi, morð og fangelsi!

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó