Origo Akureyri

Listamenn fá greitt frá Listasafni Akureyrar

Í fjárhagsáætlun Akureyrar fyrir árið 2018 er gert ráð fyrir 1,5 milljón króna viðbótarfjárveitingu vegna verkefnisins „Greiðum listamönnum“.

Listasafnið á Akureyri hafði áður mótað umræddar verklagsreglur og stjórn Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM) samþykkt þær. Reglurnar fela í sér greiðslur til myndlistarmanna fyrir sýningar eftir umfangi þeirra. Einnig verður greitt fyrir vinnu listamanna við að setja upp sýningar samkvæmt taxta SÍM.

Markmið verklagsreglna er að tryggja að listamenn fái sanngjarnar greiðslur fyrir þátttöku í sýningum og vinnuframlag sem innt er af hendi í tengslum við sýningar á verkum þeirra.

Listasafnið á Akureyri er annað safnið á eftir Listasafni Reykjavíkur til að gera verklagsreglur tengdar átakinu „Greiðum listarmönnum“.

Byrjað verður að greiða samkvæmt verklagsreglunum þegar nýtt og endurbætt Listasafn á Akureyri verður opnað með sjö nýjum sýningum í sumar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó