Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið og Flugsafn Íslands hlutu styrki úr Safnasjóði

Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið og Flugsafn Íslands hlutu styrki úr Safnasjóði

Síðastliðinn þriðjudag fór fram í Reykjavík aðalúthlutun 2024 úr safnasjóði. Listasafnið á Akureyri hlaut styrk til þriggja verkefna samtals að upphæð 4.400.000 kr. og Minjasafnið hlaut styrk til þriggja verkefna að upphæð 6.100.000 kr. Flugsafn Íslands hlaut einnig styrk til fjögurra verkefna að upphæð 5.150.000 kr.

Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja D. Alfreðsdóttir, úthlutaði að þessu sinni 176.335.000 kr. Safnasjóði bárust alls 150 umsóknir frá 49 aðilum að heildarupphæð rúmlega 312 milljónum króna fyrir aðalúthlutun úr safnasjóði árið 2024. Veittir voru 107 styrkir til eins árs að heildarupphæð 166.335.000 kr. til 46 styrkþega og tvær öndvegisumsóknir fá auk þess styrk fyrir árið 2024.

Hér gefur að líta lista yfir eins árs styrki úr aðalúthlutun safnasjóðs 2024.

Sambíó

UMMÆLI