Origo Akureyri

Listasafnið á Akureyri: Útskriftarsýning VMA opnuð á laugardaginn 

Listasafnið á Akureyri: Útskriftarsýning VMA opnuð á laugardaginn 

Laugardaginn 18. nóvember kl. 15 verður útskriftarsýning nemenda listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri, Bullandi óreiða, opnuð í Listasafninu á Akureyri. Samhliða sýningunni má sjá verk tveggja nemenda á lokaári sérnámsbrautar.

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar VMA. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er níunda árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst. Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með.

Samhliða öðru námi fá nemendur eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.

Listnáms- og hönnunarbraut: Aron Rúnar Hill Ævarsson, Hafdís María Skúladóttir og Óríon Muninn Mielnik Bjarkason. Sérnámsbraut: Klara Fanndís Sonjudóttir og Sigurður Einar Hákonarson.

Mynd: Hafís María Skúladóttir.

Sýningin stendur til 26. nóvember og verður opin alla daga kl. 12-17.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó