Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Litskrúðugur og fjörmikill öskudagur á Akureyri

Litskrúðugur og fjörmikill öskudagur á Akureyri

Öskudagurinn á Akureyri er til umfjöllunar á vef Akureyrarbæjar í dag en það var að venju mikið um dýrðir í bænum í gær þegar krakkar gengu á milli fyrirtækja og stofnana til að syngja fyrir nammi á öskudaginn. Veðrið var mjög gott og því fleiri á ferðinni en oft áður. 

Í Hrísey slógu börnin köttinn úr tunnunni við Hríseyjarbúðina og þar voru tunnudrottning og kattardrottning krýnd. Gengið var á milli fyrirtækja og sungið fyrir öskudagsnammi, og grunnskólabörnin fóru í öll hús eyjarinnar þar sem sungið var til að afla fjármuna í ferðasjóð nemenda.

Í Grímsey var öskudagshátíðarhöldum frestað fram á föstudag því þá er von á fleiri börnum heim sem eru annars í skóla í landi.

Á vef bæjarins má skoða myndir bæði frá gærdeginum í Hrísey og á Akureyri. Smelltu hér til að skoða myndirnar.

Myndir frá Hrísey tók Ásrún Ýr Gestsdóttir en María H. Tryggvadóttir tók myndirnar á Akureyri, til að mynda myndina hér að ofan.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó