Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir að nýir starfsmenn Öldrunarheimila Akureyrar muni fara á aðra kjarasamninga en þeir sem þegar starfa þar. Þetta kemur fram í viðtali við Ásthildi í Landsbyggðum á N4 næstkomandi fimmtudagskvöld þar sem verður rætt við Ásthildi um fjármál Akureyrarbæjar .
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf tekur við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar um mánaðamótin. Ásthildur segir ljóst að kostnaðurinn við rekstur hjúkrunarheimila á Akureyri muni lækka í kjölfarið.
Ásthildur segist treysta því starfsemin og þjónustan verði áfram jafn öflug og hún hefur verið hjá bænum. Nánar er fjallað um viðtalið við Ásthildi á vef N4, n4.is, í dag.
UMMÆLI