Logi og Hilda Jana leiða framboðslista Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi

Logi og Hilda Jana leiða framboðslista Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samþykktur samhljóða á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í gærkvöldi.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar, þingmaður og arkitekt leiðir listann, annað sætið skipar Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi í Akureyrarbæ, formaður SSNE og fyrrverandi sjónvarpsstjóri N4. Í þriðja sæti er Eydís Ásbjörnsdóttir forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð og framhaldsskólakennari, fjórða sæti skipar svo Kjartan Páll Þórarinsson íþrótta- og tómstundafulltrúi í Norðurþingi.


Kristján L. Möller og Svanfríður Jónasdóttir skipa heiðurssæti á listanum en hann er skipaður tuttugu kraftmiklum frambjóðendum, með fjölbreytta reynslu og þekkingu, sem eiga það sameiginlegt að vilja vinna að framgangi jafnaðarstefnunnar og beita sér af fullu afli í þágu íbúa kjördæmisins, sem og alls almennings.

„Ég er stoltur af því að leiða áfram lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Allir frambjóðendur Samfylkingarinnar í kjördæminu eru gríðarlega öflugir, en það sem einkennir efstu fjögur sætin á listanum er ekki síst öflugur bakgrunnur í sveitarstjórnum. Öll höfum við setið í sveitarstjórnum og þekkjum vel mikilvægi nærþjónustunnar og nauðsyn þess að auka samvinnu og traust milli ríkis og sveitarfélaga. Ég hlakka til kosningabaráttunnar með þessum góða hópi,“ segir Logi Einarsson.

„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og ég hlakka til kosningabaráttunnar sem framundan er. Ég brenn fyrir jöfnuði, þá ekki síst byggðajöfnuði, enda tel ég að við sem samfélag eigum mikið undir því að skapa hverjum einstaklingi skilyrði til þess að vaxa og dafna á eigin forsendum í landi sem bæði hefur upp á að bjóða sterka höfuðborg og öflugar landsbyggðir,“ segir Hilda Jana Gísladóttir.

Listinn í heild:

1. Logi Einarsson
Akureyri
Alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar

  1. Hilda Jana Gísladóttir
    Akureyri
    Bæjarfulltrúi og formaður SSNE
  1. Eydís Ásbjörnsdóttir
    Eskifirði
    Framhaldskólakennari og bæjarfulltrúi
  2. Kjartan Páll Þórarinsson
    Húsavík
    Íþrótta- og tómstundafulltrúi
  3. Margrét Benediktsdóttir
    Akureyri
    Háskólanemi
  4. Sigurður Vopni Vatnsdal Gíslason
    Vopnafirði
    Deildarstjóri á leikskóla
  5. Ísak Már Jóhannesson
    Akureyri
    Umhverfisfræðingur
  6. Lilja Guðný Jóhannesdóttir
    Neskaupstað
    Skólameistari
  7. Ólafur Haukur Kárason
    Siglufirði
    Byggingameistari
  8. Guðrún Einarsdóttir
    Húsavík
    Hjúkrunarfræðinemi
  9. Jóhannes Óli Sveinsson
    Akureyri
    Framhaldsskólanemi
  10. Nanna Árnadóttir
    Ólafsfirði
    Félagsliði á öldrunarheimili
  11. Baldur Pálsson
    Egilsstöðum
    Austurlandsgoði
  12. María Hjálmarsdóttir
    Eskifirði
    Verkefnisstjóri
  13. Sigríður Huld Jónsdóttir
    Akureyri
    Skólameistari
  14. Magni Þór Harðarson
    Eskifirði
    Ráðgjafi
  15. Björgvin Valur Guðmundsson
    Stöðvarfirði
    Leiðbeinandi í grunnskóla
  16. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
    Akureyri
    Alþingismaður
  17. Svanfríður Inga Jónasdóttir
    Dalvík
    F.v. alþingismaður og bæjarstjóri
  18. Kristján L. Möller
    Siglufirði
    F.v. alþingismaður og ráðherra

UMMÆLI