Lögreglan á Akureyri handtók vopnaðan innbrotsþjóf

Lögreglan á Akureyri handtók vopnaðan innbrotsþjóf

Lögreglan á Akureyri handtók í gær mann sem réðst inn í íbúð í bænum og ógnaði húsráðanda með hnífi. Maðurinn var handtekinn á fimmta tímanum í gær en frá þessu er greint á vef RÚV.

Þar segir að maðurinn hafi ruðst inn í íbúðina og hafi verið að gramsa í dóti þar þegar íbúar urðu hans varir. Hann hafi þá lagst með hnífi til húsráðanda sem yfirbugaði hann án þess að verða fyrir líkamstjóni.

Lögreglumenn og sérsveit lögreglunnar voru kölluð út og maðurinn var fluttur í fangaklefa.

UMMÆLI