Lögreglan leitar að Birnu Brjánsdóttur

 Birna Brjáns­dótt­ir

Birna Brjáns­dótt­ir

Leit stendur enn yfir að Birnu Brjáns­dótt­ur sem er fædd árið 1996. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar í dag.

Birna er 170 cm há, um það bil 70 kíló og með sítt rauðleitt hár. Hún var klædd í svart­ar galla­bux­ur, ljósgráa peysu, svart­an flís­jakka með hettu og svarta Dr. Mart­in skó þegar hún sást síðast.

Síðast er vitað um Birnu í miðborg Reykja­vík­ur um klukkan fimm aðfaranótt laugardags. Upp­lýs­ing­ar um ferðir Birnu ber­ist til lög­reglu í síma 444 1000.

Sambíó

UMMÆLI