Lögreglan á Norðurlandi eystra sendir út viðvörun vegna veðurs

police

Lögreglan á Norðurlandi Eystra senti út viðvörun vegna veðurs

Eins og glöggir Akureyringar hafa tekið eftir hefur snjóað mikið í bænum í dag. Þrátt fyrir að veðrið hafi verið fallegt og jólalegt í dag má búast við að það aukist töluvert í vind strax í kvöld og á næstu dögum. Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi frá sér viðvörun í tilefni stórhríðarinnar sem væntanleg er. Þar er fólk meðal annars hvatt til þess að vera ekki á ferðinni á vanbúnum bifreiðum.

Viðvörun vegna vetrarveðurs
Veðurstofu Íslands, miðvikudaginn 16. nóvember 2016 kl 12.00

Viðvörun
Búist er við norðan hvassviðri eða stormi með talsverðri ofankomu norðantil á landinu seint í kvöld og á morgun fimmtudag og einnig er búist við mjög sterkum vindhviðum undir Eyjafjöllum og Vatnajökli á morgun.
Nánar um útlitið:
Norðalæg átt, 10-18 m/s með éljum um landið norðanvert, en hvessir og bætir í ofankomu í kvöld. Norðan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) og snjókoma norðantil á landinu í nótt og á morgun og talsverð úrkoma á köflum og slæmt skyggni. Undir hádegi á morgun hvessir mjög undir Eyjafjöllum og síðdegis undir Vatnajökli og á þeim slóðum á búast við vindhviðum yfir 40 m/s. Fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðri og fært og að vera ekki á vanbúnum bifreiðum á þessum slóðum.
Þar sem stórstreymt var í morgun, má búast við mjög hárri sjávarstöðu og mikilli ölduhæð við norðurströndina.

Sjá einnig: Stórhríð á fimmtudag

UMMÆLI

Sambíó