Lögreglan á Norðurlandi eystra tekur þátt í Twitter maraþoni

Mynd af Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra tekin í Öxnadal

Næstkomandi laugardag, 16 desember, mun lögregland á Norðurlandi eystra vera með Twitter-maraþon lögreglunnar ásamt lögreglunni á Suðurnesjum og lögreglunni á höfuðborrgarsvæðinu.

Verkefnið sem kallast Löggutíst felur það í sér að lögreglan noti samfélagsmiðla til þess að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessara lögregluliða frá því klukkan 16:00 þennan dag til 04:00 aðfaranótt sunnudags.

Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útkölum sem henni berast og hversu margvísleg þau kunna að vera.

Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.

Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglanNE – það má einnig sjá hér www.twitter.com/logreglanNE

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan

Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á
https://twitter.com/sudurnespolice

Sambíó

UMMÆLI