Prenthaus

Loka deild á leikskóla á Húsavík á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr skimunMynd: VisitHúsavík

Loka deild á leikskóla á Húsavík á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr skimun

Ákveðið var að hafa eina deild á leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík lokaða í dag þar sem beðið er eftir niðurstöðu úr sýnatöku sem barn á deildinni fer í í dag. Rúmlega 10 börn eru heima í dag til öryggis. Þetta kemur fram á vef RÚV í dag.

Þar segir að fólk sem var gestkomandi á heimili barnsins í síðustu viku hafi greinst með veiruna um helgina. Jón Höskuldsson, fræðslufulltrúi á Húsavík segir í samtali við fréttastofu RÚV að það þyki ekki nauðsynlegt að loka öllum leikskólanum enn sem komið er né senda önnur börn eða foreldra í skimun. Staðan verði endurmetin seinna í dag og foreldrar upplýstir um framhaldið.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó