Loka fyrir almenna bílaumferð vegna framkvæmda við Glerárskóla

Loka fyrir almenna bílaumferð vegna framkvæmda við Glerárskóla

Hluta af Höfðahlíð á Akureyri hefur verið lokað fyrir almenna bílaumferð frá og með deginum í dag, 26. júlí. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar en þar segir að lokunin sé vegna framkvæmda í kringum Glerárskóla. Kaflinn sem lokunin nær til er á milli Skarðshlíðar og Háhlíðar en á myndinni hér að neðan má sjá nánar hvar lokunin er.

Í tilkynningu bæjarins segir að ekki sé alveg ljóst hversu lengi lokunin muni standa yfir en að hugsanlegt sé að það verði allt að þrjár vikur.

Sjá einnig: Framkvæmdir við Klappir ganga vel: „Verður flottasti leikskólinn á Akureyri“

Opið verður fyrir umferð þeirra sem vinna á svæðinu, vinnutækja, íbúa í Drangshlíð og Hvammshlíð, auk þess sem strætó og viðbragðsaðilum verður gert kleift að komast um götuna. Gestum Glerárlaugar er bent á hjáleið um Melgerðisás. 

Miklar framkvæmdir standa yfir á svæðinu í kringum Glerárskóla en unnið er að því að byggja leikskólann Klappir, gera nýtt plan við Drangshlíð, endurgera neðra bílastæðið við Glerárskóla og þá eru framkvæmdir hafnar við körfuboltavöll á svæðinu, Garðinn hans Gústa.

Sjá einnig: Fyrsta skóflustungan tekin að Garðinum hans Gústa


UMMÆLI

Sambíó