Loka fyrir heimsóknir barna á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Loka fyrir heimsóknir barna á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Breytingar hafa verið gerðar á takmörkunum heimsókna á Sjúkrahúsið á Akureyri. Vegna aukins fjölda smita hjá börnum á Akureyri undanfarna daga hefur verið ákveðið að loka fyrir heimsóknir þeirra tímabundið, nema í undantekningartilvikum.

„Viðbragðsstjórn SAk beinir þeim tilmælum til fólks að heimsækja ekki veika aðstandendur fyrr en 14 dögum eftir heimkomu erlendis frá. Ef aðstæður eru þannig að heimsókn er metin mikilvæg er heimsóknargestur beðinn um að vera með skurðstofugrímu og spritta hendur. Þetta gildir aðeins að því gefnu að viðkomandi hafi engin einkenni sem geta bent til COVID-19 eða hafi umgengist einstakling með sjúkdóminn á síðustu 14 dögum. Skurðstofugrímu er hægt að kaupa í apóteki eða nálgast á deild sjúklings í samráði við starfsfólk,“ segir um heimsóknartakmarkanir á vef Sjúkrahússins.

Heimsóknir verða leyfðar með eftirfarandi takmörkunum:

Eftirfarandi breytingar taka gildi 01.10.2021

  • Tveir gestir mega koma í heimsókn á dag, vegna aukins fjölda smita hjá börnum á síðustu dögum þykir rétt að loka fyrir heimsóknir þeirra tímabundið, nema í undantekningartilvikum.
  • Gestir mega ekki hafa kvefeinkenni, hita, hósta, slappleika eða beinverki
  • Gestir mega ekki hafa verið í tengslum við COVID-19 smitaðan einstakling síðastliðna 14 daga
  • Gestir noti grímu og spritti hendur áður en farið er inn á stofu.
  • Hægt er að setja meiri takmarkanir hjá sjúklingum sem eru sérstaklega viðkvæmir.

UMMÆLI