Lokað fyrir heimsóknir á sjúkra- og hjúkrunardeildir Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Lokað fyrir heimsóknir á sjúkra- og hjúkrunardeildir Heilbrigðisstofnunar Norðurlands

Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) hefur tekið þá ákvörðun að loka sjúkra- og hjúkrunardeildum fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta þar til annað verður formlega tilkynnt. Lokunin hefur þegar tekið gildi. Er þetta gert að höfðu samráði við sóttvarnayfirvöld eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir vegna COVID-19 veirunnar.  

Heilbrigðisstofnun Norðurlands rekur sjúkra- og hjúkrunarrými á Húsavík, Fjallabyggð,  Sauðárkróki og Blönduósi og eru skjólstæðingar flestir aldraðir og/eða með undirliggjandi sjúkdóma og því í sérstökum áhættuhópi að veikjast alvarlega af kórónaveirunni. Leitað er allra leiða til að draga úr hættu á að íbúar á hjúkrunardeildum og sjúklingar á sjúkradeildum veikist er og lokunin liður í því. Við sérstakar aðstæður má leita undanþágu hjá yfirhjúkrunarfræðingum á hverjum stað, vinsamlegast heimisækið www.hsn.is fyrir staðbundar upplýsingar.

HSN bendir fólki einnig á að kynna sér upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is um stöðu mála, en þær geta breyst frá degi til dags.

UMMÆLI

Sambíó