Lonely Planet mælir með ferðalagi um Norðurland

Mynd: IvanVieito/GettyImages

Lonely Planet, stærsti útgefandi ferðabóka í heiminum, birti í dag grein á vef sínum þar sem mælt er með ferðalagi um Eyjafjörð og nágrenni.

Í greininni segir: „Hringvegurinn er kannski klassíska leiðin fyrir ferðamenn á Íslandi og þar má finna fullt af leyndum fjársjóði en enginn ferðamaður mun sjá eftir því að taka smá krókaleið og skoða það sem Eyjafjörður, lengsti fjörður landsins hefur upp á að bjóða.“

Mælt er með því að byrja ferð sína á Akureyri þar sem má finna nóg af fínum veitingastöðum og hótelum, fara í fjallið og enda daginn í Sundlaug Akureyrar.

„Sama hvernig viðrar er ekkert meira slakandi fyrir vöðvana en ferð í Sundlaug Akureyrar. Ein af bestu sundlaugum Íslands þar sem íbúar bæjarins hittast á hverjum degi og slaka á í heitum pottum og gufuböðum.“

Því næst er mælt með ferð til Árskógsandar í Bjórböðin og halda svo áfram til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Þá er einnig mælt með því að ferðamenn geri sér aukaferð til þess að skoða Goðafoss.

Grein Lonely Planet, sem er fallega myndskreytt með myndum frá svæðinu, má lesa í heild sinni á ensku með því að smella hér.

UMMÆLI

Sambíó