Lundinn sestur á varpstöðvar í Grímsey

Lundinn sestur á varpstöðvar í Grímsey

Lundinn settist tímanlega upp á varpstöðvar í Grímsey miðvikudaginn 10. apríl síðastliðinn. Sjómenn höfðu séð til lunda nálægt eynni frá því um 3. apríl. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Lundinn er mjög stundvís en hann sest nánast allaf upp á eyjuna í kringum 10. apríl ár hvert. Fuglinn byrjar á því að finna holuna sína, tekur til við að fjarlægja rusl og laga hana eftir þörfum. Hann notar þá gogginn til að grafa og fæturna til að moka. Talið er að það sé karlfuglinn sem mæti fyrst og sjái um tiltektina og að kvenfuglinn komi u.þ.b. viku síðar.

Svafar Gylfason, sjómaður í Grímsey, fylgist vel með fuglalífinu í eyjunni og hefur skráð komu fuglanna árlega. Að hans sögn er talsvert minna um svartfugl í eyjunni í ár miðað við fyrri ár og telur Svafar það mögulega orsakast af því að algjör loðnubrestur hefur orðið við eyjuna í ár. Hann vonar þó að fuglarnir séu ennþá út á sjó og eigi eftir að skila sér heim.

Eyjabúar eru orðnir langeygir eftir vorinu en frá því um páska hefur tíð verið rysjótt og búið að vera frekar vindasamt. Það er því ávallt mikið gleðiefni að sjá fuglana á ný. Fyrir utan sjófuglana þá er tjaldurinn mættur norður við heimskautsbaug og fyrstu kiðlingarnir bornir og fer að styttast í lömbin.

Sambíó

UMMÆLI