![](http://www.kaffid.is/wp-content/uploads/2016/11/a.vala_-650x650.jpg)
Valgerður Þorsteinsdóttir er höfundur verksins
Eitt þeirra verka sem útskriftarnemar á listnáms- og hönnunarbraut sýna nú í Ketilhúsinu og Deiglunni er myndbandsverk Valgerðar Þorsteinsdóttur.
Verkið er afar glæsilegt en það tekið upp í Grímsey í mars. Valgerður tók upp myndbandið, klippti það og setti síðan við það frumsamda tónlist sína sem hún syngur í myndbandinu. Ármann Einarsson aðstoðaði við upptöku og útsetningu á laginu. Sjón er sögu ríkari.
UMMÆLI