Prenthaus

Majó opnar í Laxdalshúsi

Majó opnar í Laxdalshúsi

Akureyrarbær hefur samið við Majó um leigu á Laxdalshúsi, elsta húsi Akureyrar, frá og með 15. ágúst. Í húsinu verður vinnustofa Jónínu Bjargar Helgadóttur með rými til að sýna myndlistaverk og einnig eldhús Majó.

„Í þessu fína húsnæði verður hægt að bóka hópa í kvöldverð eða sushi námskeið og þar munum við græja veislur og fleira sem tengist þessari ástríðu okkar. Á tyllidögum verður opið fyrir gesti og gangandi í drykk og mat, eða mögulegt að grípa með sér brottnámsbakka, allt í umhverfi vinnustofunnar,“ segir í tilkynningu frá Majó á Facebook.

Majó er fyrirtæki þeirra Magnúsar Jóns Magnússonar og Jónínu Bjargar. Þau elska mat, menningu og list og hafa hingað til verið með pop-up veitingastaði á Norðurlandi undir nafni Majó þar sem einblínt er á sushi og fusion matargerð.

„Þetta sögufræga hús verður reglulega opið og hægt að hitta á Jónínu Björgu á vinnustofu sinni og svo verður rými fyrir gestalistamenn á efri hæðinni svo það verður svo sannarlega líf í húsinu! Majó mun svo að sjálfsögðu halda áfram að koma til Ólafsfjarðar, Dalvíkur og fleiri staða með Pop-up veitingastað. Opnun verður auglýst síðar, en við erum svo sannarlega spennt fyrir þessum áfanga,“ segir í tilkynningu Majó.

Sambíó

UMMÆLI