Origo Akureyri

María Catharina í hollensku úrvalsdeildina

María Catharina í hollensku úrvalsdeildina

Knattspyrnukonan María Catharina Ólafsdóttir Gros hefur skrifað undir samning við hollenska úrvalsdeildarfélagið Fortuna Sittard. María yfirgefur því Þór/KA og fer til Hollands. Þetta kemur fram á vef Þór/KA í dag.

„María kom aftur heim og spilaði með Þór/KA síðari hluta tímabilsins 2022 eftir tæplega ársdvöl hjá Celtic í Skotlandi. Markmiðið var að komast aftur út í atvinnumennsku og nú tekur við nýr kafli hjá henni, að spila í hollensku úrvalsdeildinni. Hollenska liðið vildi reyndar fá hana strax síðastliðið sumar, en María tók sér þann tíma sem henni fannst hún þurfa, æfði og spilaði með Þór/KA, en hélt síðan til Hollands núna í lok janúar,“ segir í tilkynningu Þór/KA

„Aðstæðurnar hérna eru mjög flottar. Það er mikið jafnrétti á milli stelpnanna og strákanna. Það er séð mjög vel um mann og ég held að þetta sé rétta umhverfið fyrir mig til að verða betri leikmaður. Þetta er alveg nýtt lið og þau sýndu mér áhuga fyrir sumarið í fyrra, en ég taldi að þetta væri rétti tíminn fyrir mig núna að skrifa undir,“ segir María í samtali við heimasíðu Þór/KA

Nánari umfjöllun má finna á vef Þór/KA með því að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó