Mennska bókasafnið á Amtsbókasafninu

Mennska bókasafnið á Amtsbókasafninu

Þann 11. maí næstkomandi klukkan 13:00 til 16:00 verður viðburður á Amtsbókasafninu á Akureyri þar sem lánaðar verða út mennskar bækur.

Á hinu Mennska bókasafni gefst tækifæri til þess að spjalla í um hálftíma við einstaklinga sem standa frammi fyrir ólíkum og mögulega mjög framandi áskorunum og heyra þeirra hlið í þeirra eigin orðum.

Dæmi um bókatitla sem hafa verið á viðburðum úti í heimi eru til dæmis:
ADHD, Óvirkur alkóhólisti, Kulnun, Múslími.

Ekki dæma bókina eftir kápunni!

Fyrsta Mennska bókasafnið opnaði í Danmörku árið 2000 og síðan þá hafa viðburðir á vegum þeirra farið fram í 85 löndum.

Mennska bókasafnið er styrkt af sóknaráætlun SSNE.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó