Menntaskólinn á Akureyri býður grunnskólanemendum í heimsókn

Menntaskólinn á Akureyri býður grunnskólanemendum í heimsókn

Þriðjudaginn 24. maí klukkan 16:30 – 17:30 verður opið hús í Menntaskólanum á Akureyri fyrir nemendur 10. bekkjar og forráðafólk þeirra. Nemendur 9. bekkjar eru einnig boðnir velkomnir til að kynna sér hraðlínu. Fólki gefst kostur á því að kynna sér skólann, námið, þjónustuna, heimavistina og félagslífið. Kennarar, starfsfólk og nemendur skólans taka vel á móti gestum og svara spurningum um allt sem snertir skólann og námið. Bryddað verður upp á hinum ýmsu skemmtilegheitum svo sem ratleik og tónlistaraflutningi nemenda og boðið upp á kaffisopa og vöfflur. Opið er fyrir umsóknir í framhaldsskóla til 10. júní nk. Á www.menntagatt.is. Umsóknir um hraðlínu fara í gegnum ma.is.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó