#metoo – umræða innan íþróttahreyfingarinnar

Frístundaráð Akureyrarbæjar ræddi viðbrögð og aðgerðir vegna #metoo umræðunnar innan íþróttahreyfingarinnar á síðasta fundi sínum. Formaður ráðsins hélt á dögunum fund með forsvarsmönnum ÍBA og stærstu íþróttafélaga á Akureyri þar sem farið var yfir #metoo umræðuna í tengslum við íþróttahreyfinguna.

Íþróttasamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í upphafi árs vegna #metoo umræðunnar og sendi frá sér bréf þann 31. janúar sl. þar sem farið var yfir viðbrögð íþróttahreyfingarinnar.Frístundaráð lýsti yfir ánægju með yfirlýsinguna og bréfið.

Ráðið ítrekaði mikilvægi þess að vinna hratt og örugglega að útfærslum á aðgerðum og skorar á ÍSÍ að skila af sér þeirri vinnu sem fyrst.

Þá hefur frístundaráð hvatt ÍBA til að fylgja málinu fast eftir og lýst því yfir að ráðið sé tilbúið til að veita íþróttahreyfingunni á Akureyri stuðningtil að auka við fræðslu á meðal þjálfara og forystumanna íþróttahreyfingarinnar í þeirri viðleitni að koma í veg fyrir kynferðislega og kynbunda áreitni, ofbeldi og einelti.

Í komandi viðræðum á árinu 2018 um endurnýjun rekstrarsamninga íþróttafélaga mun ráðið áskilja sér þann rétt að skilyrða fjárveitingar til félaganna gegn því að þau setji sér siðareglur, viðbragðsáætlanir og komi markvissri fræðslu um ofbeldi kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi.

Ráðið hvetur einnig Íþróttabandalag Akureyrar að koma á fót óháðu fagráði sem getur tekið á móti ábendingum og kvörtunum frá iðkendum í bænum. Þá minnir ráðið stjórnendur í íþrótta-, tómstunda-, og æskulýðsstarfi á Akureyri að þeir beri ábyrgð á því að allt starf sé skipulagt með jafnrétti að leiðarljósi. Þegar samningar verða endurnýjaðir verður sett inn ákvæði sem skyldar félögin til þess að hafa skýra og virka jafnréttis- og aðgerðaráætlun.

UMMÆLI